Fréttir

Total items: 1194

Risa-íshokkímót um næstu helgi

Dags: 16.11.2003 19:11


Um næstu helgi fer fram í Laugardalnum ICELAND INVITATIONAL íshokkímót en þetta er alþjóðlegt mót sem skipulagt er af ÍT ferðum í samvinnu við SR, en kynning á mótinu erlendis er í höndum ÍT ferða og Icelandair. Umfang þessa móts er mjög mikið enda taka 17 erlend lið þátt í því ásamt einhverjum íslenskum. Mótið hefst á hádegi á föstudaginn 21. nóv. og stendur sleitulaust til kl. 14:00 sunnudaginn 23. nóvember. Alls verða spilaðir 46 leikir í þremur flokkum, þ.e. í "keppnisflokki", kvennaflokki og eldri flokki. Þar sem framkvæmd slíks móts kostar mikla vinnu eru SR-ingar hvattir til að hafa samband við skrifstofuna (þriðjudag 18-20) til að bjóða fram aðstoð sína.