Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn, fimmtudag kl.20:00

Dags: 17.11.2003 18:20


N.k. fimmtudag 20.nóvember munu Reykjavíkurfélögin SR og Björninn leiða saman hesta sína í Skautahöllinni í Laugardal. Bjarnarmönnum tókst að skora heldur fleiri mörk en SR-ingum á móti Akureyringum um síðustu helgi en sá leikur lyktaði 11-7 fyrir SA. Æfingaleikur milli SR og Bjarnarins í síðustu viku endaði með markalausu jafntefli 0-0, sem er nokkurt einsdæmi í íslensku íshokkíi. Bjarnarmenn hafa sýnt að þeir hafa úr miklum mannskap að moða en þeir hafa m.a. fengið góðan liðstyrk að norðan, þá Stefán og Birgi, munu líklega láta mikið að sér kveða í vetur.
SR-ingar hafa líka úr breiðum hópi að velja en lið SR hefur bæði marga reynda leikmenn innanborðs og eins efnilega ungliða sem eru farnir að heimta sæti af þeim eldri. Leikurinn á fimmtudaginn verður vonandi skemmtilegur á að horfa og um að gera að fjölmenna í höllina. Leikurinn byrjar kl.20:00