Dags: 20.11.2003 14:08
Núna í kvöld nánar tiltekið kl.20:00 munu SR og Björninn mætast í sínum fyrst leik í íslandsmóti karla í íshokkí. Síðasti æfingaleikur má milli þessara liða endaði með markalausu jafntefli, sem er sjáldséð í íslensku íshokkíi. Þessi Reykjavíkurfélög hafa löngum eldað gráttslifur saman á ísnum.
Leikurinn verður vonandi skemmtilegur fyrir margrahluta sakir. Þó sérstaklega að kvenn-línudómarar munu vera með Rúnari Frey Rúnarssynir(SA) á ísnum sem er aðaldómari kvöldsins og verður það hans frumraun sem dómari í meistaraflokki.
Leikurinn byrjar kl.20:00 einsog fyrr var skrifað og eru allir SR-ingar hvattir til að mæta og horfa á þessi stórgóðu lið takast á.