Dags: 21.11.2003 13:32
Í gærkvöld áttust SR og Björninn við í skemmtilegri viðureign í Skautahöllinni í Laugardal. Nokkuð jafnt var með liðum til að byrja með en þegar rúmar 6 mínútur voru liðnar af fyrsta leikhluta tók Gauti Þormóðsson á rás, hirti pökkinn úr hrömmum Bjarnarmanna og skoraði án vandræða. Tveimur mínútum síðar voru þeir Elvar Jónsteinsson og Ágúst Ásgrímsson inní varnarsvæði Bjarnarmanna,í sömu erindargjörðum, er þeir skoruðu skemmtilegt "Power-play" mark. Ágúst skaut að markinu og pökkurinn endurkastaðist af skautanum hans Elvars og hafnaði í netinu fyrir aftan markmann Bjarnarmanna, Birgi Örn Sveinsson.
Hrólfur Gíslason minnkaði síðan muninn fyrir Björninn með aðstoð frá Sergei Zak þegar rúmlega 11 mínútur voru liðnar af leikhlutanum. Rússneska stálmúsin, Sergei, og Snorri G Sigurðsson skoruðu síðan fyrsta mark annars leikhluta, þá einum manni færri. Níu mínútum síðar bætti Trausti Bergmann enn við markatölu Bjarnarins, úr power-play, með aðstoð Sergei Zak og Daða Heimirssonar.
Þegar tæpar 5 mínútur voru eftir af leikhlutanum tók Ingvar Þór Jónsson eitt af sínum "coast-to-coast" skautahlaupum úr sínu varnarsvæði, þaut að marki Bjarnarmanna, lagði Birgi markmann og renndi pekkinum í netið. Staðan því jöfn 3 - 3.
Sergei Zak átti síðan lokaorð lotunnar með vafasömu marki eftir þvögu fyrir framan mark SR-inga. Voru margir nokkuð vissir um að hann hafði sparkað pekkinum inn en dómari leiksins Rúnar Freyr Rúnarsson var ekki á sama máli og dæmdi markið gilt.
Strax í byrjun 3.lotu fengu SR-ingar "power-play" tækifæri sem þeir náðu að nýta þegar Guðmundur "chocco" Björgvinsson skoraði undravert mark með aðstoð frá Peter Bolin.
Stefán Hrafsson og Daði Heimirsson náðu síðan að koma Birninum yfir þegar rúmalega 3 mínútu voru liðnar af lotunni, einum færri.
Hinn ól-seigi Kanadamaður Jason Selkirk jafnaði leikinn 5-5 eftir stoðsendingu frá Elvari Jónsteinssyni á 13 mínútu.
Rúmlega mínútu síðar skoraði Peter Bolin með þrumuskoti meðfram ísnum sem Birgir Sveinsson átti engar varnir við og kom SR yfir í fyrsta skipti í langan tíma í þessum leik.
Mínútu síðar náði Hallur Árnason að skora auðvelt mark eftir að markmaður Bjarnarmanna fór í skógarferð úr markinu eftir hamagang Helga Páls Þórissonar fyrir framan markið. Staða því orðin 7-5 fyrir heimamenn.
Þrátt fyrir góðar tilraunir náðu Bjarnarmenn ekki að jafna leikinn. Að sama skapi var óskiljanlegt að SR-ingar hafi ekki náð að auka enn á muninn á loka mínútunum þegar mark Bjarnarmanna stóð autt í þónokkurn tíma.
Mikill baráttuvilji var í liði SR-inga framan af en vígtennurnar komu þó ekki í ljós fyrr en í enda leiksins og því nokkuð ljóst að hér var á ferðinni annað lið heldur en keppti á mót SA fyrir nokkru. Ef þessari siglingu heldur áfram þurfa SA menn að verja titill sinn af kappi ef hann á ekki að koma heim til Reykjavíkur.