Dags: 25.11.2003 17:29
Á sunnudagskvöldið áttust við kvennalið Team Minnesota og 3. flokkur karla hjá SR í æfingaleik. Til þessa leiks var stofnað að beiðni bandaríska liðsins en þetta lið bar auðveldan sigur úr býtum á nýafstöðnu Iceland Invitational í sínum flokki. Í þessu lið leikur m.a. fyrrverandi landsliðskona úr úrtökuliði Bandaríkjanna fyrir Ólympíuleikana í Nagano, stórkostlegur leikmaður sem heillaði alla er sáu þetta lið spila í mótinu, en sem kunnungt er hafa Bandaríkjamenn verið nánast ósigrandi í kvennaíshokkí. Leikurinn var því kærkomið tækifæri fyrir SR að leika gegn nýju liði. Ákveðið var að tefla fram 3. flokki og útiloka allt “tékk”. Leikurinn var hin besta skemmtun, góð tilþrif á báða bóga, en SR vann hann þó nokkuð auðveldlega 9-3. Við þökkum þeim bandarísku fyrir skemmtilegan leik.