Fréttir

Total items: 1194

Brynjumótið - Upplýsingar

Dags: 25.11.2003 19:17


Þá er dagskráin fyrir Brynjumótið á Akureyri 28. – 30. nóvember svotil frágengin. Ekki er þó búið að ganga endanlega frá leikjatímum fyrir einstaka flokka en við eigum von á geta dreift endanlegri leikjadagskrá frá SA á Akureyri á síðustu æfingunni fyrir mótið, þ.e. n.k. fimmtudag. Samkvæmt þeirri dagskrá sem fyrir liggur munu fyrstu leikir okkar hefjast á föstudegi kl. 19:00 með leik í 4. flokki. Á laugardagsmorgni munu 5., 6. og 7. fl. hefja sína leiki. Mótinu lýkur svo á sunnudag kl. 12:15.

Mikill fjöldi leikmanna og foreldra þeirra mun fara á Brynjumótið. U.þ.b. helmingur leikmanna fer með SR-rútunni og gistir í SR-gistingu. Aðrir munu fara með foreldrum sínum og gista með þeim. Fararstjóri í SR-rútunni er Sveinn Bjarki Sigurðsson (899-7841). Hann mun ennfremur hafa umsjón með SR-gistingunni ásamt allnokkrum foreldrum sem fara með SR-rútunni og gista meðal leikmanna.

Ferðir: SR-rútan mun leggja af stað frá skautahöllinni föstudaginn 28. nóv. kl. 9:30 (mæting 9:00). Áætlað er að koma til Akureyrar milli 14:30 og 15:30. Eftir mótið leggur SR-rútan af stað frá Akureyri um kl. 13:30 á sunnudegi og kemur til Reykjavíkur milli kl. 18:30 og 19:30. Mikilvægt er að foreldrar þeirra barna sem koma með rútunni séu þar til að taka á móti þeim. SR-rútan verður ennfremur notuð til að keyra leikmenn á milli skautahallar og gistingar.

Gisting: Í ár verður SR-gistingin á farfuglaheimilinu Stórholti 1 á Akureyri og á Lónsá. Leikmenn munu gista í sérherbergjum.

Fæði: Þeir leikmenn er fara með SR-rútunni þurfa að hafa nesti með sér á leiðinni norður. Við mælumst til þess að það verði hollt nesti, t.d. smurt brauð, ávaxtasafi og ávextir. Þeir sem eru í SR-gistingunni munu fá kvöldverð á föstudagskvöldi ásamt morgunverði á laugardegi og sunnudegi. Áður en lagt er af stað suður á sunnudegi munu þeir fá mat. Á laugardegi munu allir leikmenn SR, hvort sem þeir eru í SR-gistingu eða ekki, fá samlokur, ávexti og ávaxtasafa, og um kvöldið fá svo allir pizzu. Ef foreldrar vilja líka fá pizzu fyrir leikinn, verður að láta SR vita á fimmtudagskvöldi þegar ganga þarf frá skráningu í ferðina (sjá hér að neðan).

Hafa meðferðis: Muna að taka með sér svefnpoka, hlý föt, tannbursta, tannkrem, handklæði og aukaföt, ásamt hokkígallanum. Það má koma með litlar leikjatölvur og ferðaspilara. Leikmenn þurfa ekki að hafa með sér aukapening.

Liðstjórar: Hvert lið hefur liðstjóra úr röðum foreldra. Hlutverk hans er að vera þjálfurum innan handar í búningsklefa fyrir og eftir leik, aðstoða með búninga og sjá til þess að allir mæti á réttum tíma. Foreldrar barna í viðkomandi liði geta hringt í liðstjóra um frekari upplýsingar. Nöfnum liðstjóra verður dreift með endanlegri dagskrá á n.k. fimmtudag.

SR-miðstöð: Í setustofu skautahallarinnar á annarri hæð mun SR hafa fastan upplýsingatíma fyrir foreldra og leikmenn sem hér segir: föstudagskvöld frá 20:00 til 21:00, og laugardag frá 11:00 – 12:00.

Boð og bönn: Eins og undanfarin ár verður sælgæti og gosdrykkja bönnuð. Öll agamál verða metin af þjálfurum, fararstjóra og stjórn SR, annað hvort á Akureyri eða við heimkomu. SR treystir hins vegar vel sínum leikmönnum til að vera félagi sínu til sóma; það kennir reynslan okkur. Við viljum þó hvetja foreldra til að árétta við börn sín mikilvægi þess að þau sýni sínar bestu hliðar, sérstaklega þar sem hópurinn er stór og oft spennan mikil.

Verð: Ef farið er með SR-rútunni og gist með SR í gistiheimilinu er kostnaður 11.000 krónur. Inn í þessu verði er rúta, gisting, mótsgjald (til SA) og matur alla ferðina. Þeir leikmenn sem fara með foreldrum sínum og gista með þeim borga 2.500. Innifalið er mótsgjald, snarl allan laugardaginn og síðan pizza. Þeir foreldrar sem hafa lýst áhuga sínum á að fara með SR-rútunni, og aðstoða við framkvæmdina á Akureyri, fá ókeypis ferðir.

FORELDRAR ÞURFA VINSAMLEGAST AÐ GERA UPP FERÐINA Á FIMMTUDAGINN (27. NÓV) Á ÆFINGATÍMA

MUNIÐ AÐ BIÐJA UM FRÍ Í SKÓLANUM

Stjórnin og skipulagsnefnd Brynjumóts