Dags: 28.11.2003 13:45
SR og Björninn mættust í gærkvöldi í Skautahöllinni í Laugardal. SR-ingar voru heldur rólegir í fyrsta leikhluta, eins og þeir hafi mætt með kaffibollann í annarri hendi inn á ísnum. Bjarnarmenn áttu fyrsta mark leiksins og var þar að verki Stefán Hrafnsson með aðstoð frá Sergei Zak og Snorra G. Eitthvað fór þetta í skapið á James Devine þar sem hann tók leikinn í sínar hendur og jafnaði með flottu marki án stoðsendingar aðeins 20 sekúndum síðar.
Stuttu síðar fór að síga á ógæfuhliðina hjá SR-ingum og er þeir Snorri G og Daði Örn skoruðu sitt markið hvort án þess að SR-ingar fengu neitt við ráðið.
Guðmundur "Le-chocolat" skoraði síðan fyrir SR síðasta mark lotunnar með geysiöflugu úlnliðsskoti með aðstoð frá Peter Bolin.
Þegar 27 sekúndur voru liðinar af öðrum leikhluta náði Trausti Bergmann að bæta enn í markapott Bjarnarmanna með aðstoð frá Daða og Stefáni Hrafssyni. Þegar hér var komið við sögu í leiknum fékk Sergei Zak brottrekstur fyrir "charging" og tvær mínútur aukalega fyrir kjafthátt við dómara. Snorri Rafnsson lét það power-play tækifæri ekki frá sér fara og skoraði skemmtilegt mark með aðstoð frá Úlfari Jóni Andréssyni. Rétt 10 sekúndum síðar jafnaði Gauti Þormóðsson leikinn fyrir SR með góðu marki með aðstoð frá Elvari Jónsteinssyni. Staðan því orðin 4 - 4 í lok annars leikhluta.
Strax í byrjun þriðja leikhluta sýndu SR-ingar sitt rétta andlit og náðu að halda Bjarnarmönnum vel í skefjum, þrátt fyrir að hafa verið á tímabili einum til tveimur manni færri. Þegar rúm mínúta var liðin af leikhlutanum endurtók Ingvar Þór Jónsson eitt af sínum "coast-to-coast" skautahlaupum og skoraði gríðarlega flott mark með bakhönd og kom okkar mönnum yfir í fyrsta skipti í leiknum. Helgi Páll Þórisson skoraði síðan 6. mark SR-inga með bakhönd, eftir góðan undirbúning frá Úlfari Jóni Andréssyni.
Snorri sjómaður jók enn á muninn með góðu marki þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum. Stuttu síðar tóku Bjarnarmenn leikhlé. Það tiltal hafði greinilega ekki tilætluð áhrif því að Elvar Jónsteinsson skoraði mark, einum manni undir, með aðstoð frá Ingvari Þór.
Eftir það náði Daði Örn Heimisson að minnka muninn með því nýta sér varnarmistök SR-inga rétt undir lok lotunnar.
Peter Bolin rak síðan smiðshöggið á verkið og skoraði án stoðsendingar rétt í lokin.
Lokastaða leiksins því 9 - 5 fyrir SR.
Flestir stuðningsmenn SR-inga voru farnir að gefa upp vonina með leik SR-ingar í fyrsta leikhluta. Þegar á leið leikinn sáu þeir að SR hafði fulla burði til að leika þennan leik vel og landa sigri. Það sama má segja um Bjarnarmenn en þeir léku mjög vel á köflum og leikurinn hefði geta farið á hvorn vegin sem er hefði SR ekki brett upp ermarnar þegar á leið. Það lið vinnur hins vegar sem þráir sigur meira.
Dómari leiksins var Rúnar Freyr Rúnarsson.