Fréttir

Total items: 1194

SR gegn Birninum, annað kvöld.

Dags: 01.12.2003 13:20


Annað kvöld, þriðjudagskvöld, munu SR og Björninn leiða saman hesta sína í Skautahöllinni í Laugardal, í 3. skiptið í röð á þessari leiktíð. Síðustu leikir á milli þessara liða hafa farið 7-5 og 9-5 SR í vil. SR-ingar hafa eflst dag frá degi undir dyggri stjórn Svíans, Peter Bolin, en sömu sögu má reyndar segja um þá bjarnarmenn og bjarnareðlið aldrei langt undan þegar inná ísinn er komið. Leikurinn byrjar kl.19:00 og líkur á því að átökin verða engu minni en undanfarna leiki.
Allir SR-ingar eru hvattir til að mæta og hvetja sína menn áfram!!
Áfram SR!!