Fréttir

Total items: 1194

Mexíkóska sambandið auglýsir !!

Dags: 07.12.2003 00:30


Samkvæmt þeirri ágætu síðu thehockeynews.com þá hefur mexíkóska íshokkýsambandið auglýst eftir leikmönnum til að koma til Íslands og spila með þeim í komandi 3.deildar keppni í íshokký.
Þetta veldur okkur íslendingum örlitum áhyggjum þar sem þeir eru með eitt af risahokkýþjóðum sem nágranna, þ.e.a.s Bandaríkjamenn.
Hver veit nema að stórstjörnur úr amerískum hokkýdeildum láti sjá sig hér á Frónni?
Hvað sem því líður þá undirbúa landsliðsmenn sig undir gríðarleg átök við þær þjóðir sem koma til með að mæta þeim í mars.

Nánar um þessa auglýsingu:
www.thehokceynews.com