Dags: 10.12.2003 08:46
Með Morgunblaðinu í gær var dreift tímariti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands en svo skemmtilega vill til að forsíðu þess skreytir SR-ingur, í leik í íshokkí. Það er ánægjulegt að þessi mynd skyldi vera valin á forsíðu tímaritsins og sýnir svo ekki verður um villst að íshokkíið er í góðum vexti hér á landi. SR-ingurinn sem um ræðir er Þorsteinn Björnsson, leikmaður í 3. flokki.