Dags: 11.12.2003 09:14
Sunnudaginn 14. desember verður jólaball íshokkídeildarinnar haldið í Skautahöllinni en það hefst kl. 18:30 og lýkur kl. 20:00. Allir iðkendur deildarinnar og fjölskyldur þeirra eru hvattar til að mæta og taka þá með sér skautana. Nú fá allir að spreyta sig á skautunum og skauta í kringum jólatréð.