Dags: 27.04.2009 15:52
2. flokkur gerði góða ferð til Akureyrar um helgina, er liðið lék tvo leiki við heimamenn. Fyrir leikina þurfti SR aðeins 1 stig til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í ár og strákarnir gerðu nokk betur en það, tóku öll stigin sex sem voru í boði voru.
Fyrri leikur: Á föstudagskvöldið var fyrri leikurinn og vann SR þann leik örugglega 5-3, þó svo að markvörður SR hefði verið rekinn úr leiknum í síðasta leikhluta. SR náði forystunni snemma leiks með marki Jóns Þrastar eftir stoðsendingu frá Birni Róberti. SA jafnaði í 1-1, en Egill náði forystunni fyrir SR með stoðsendingum frá Pétri Maack og Óskari. Egill var svo aftur á ferðinni og kom SR í 3-1 með stoðsendingu frá Birni Róberti og Pétur var aftur á ferðinni og skoraði 4. markið um miðjan 2. leikhluta og staðan því 4-1. Í byrjun 3. leikhluta skoraði Egill fimmta markið eftir stoðsendingu frá Pétri. Enn þá fóru skrítnir hlutir að gerast. SR-ingar höfðu framm að þessu farið 3 sinnum í boxið, en fóru núna að týnast í það einn af öðrum og á tímabíli sátu 5 SR-ingar í boxinu. SA náði að minnka munin í 5-2 þegar um 6 mínútur voru eftir. Þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum kom til átaka milli tveggja leikmanna úr sitthvoru liðinu og sá Ævar markamaður ástæðu til að blanda sér í málin og uppskar í framhaldinu brottvísun úr leiknum (þriðji maður í slagsmál). Nú voru góð ráð dýr, enginn varamarkamaður og því varð að gera 10 mín. leikhlé á leiknum á meðan Egill fór í markmannsgallan. SA menn tvíefldust við þetta og reyndu allt hvað þeir gátu til að skjóta á markið, en Egill sýndi oft snilldartakta og SA náði aðeins að skora eitt mark hjá honum áður en yfir lauk. Titillinn í höfn, en því miður skyggðu mörg brot og brottrekstrar SR í lokin á sigurgleðina.
Tölfræði:
Mörk/Stoðsendingar:
Egill Þormóðsson 3
Pétur Maack 1/2
Jón Þröstur 1
Björn Róbert 0/2
Óskar Grönhólm 0/1
Brottvísanir: 79 mínútur
Seinni leikur: Nú voru góð ráð dýr hjá SR-ingum, leikur framundan og Ævar markmaður í banni. Egill hafði sýnt snilldartakta í markinu í lokin, kvöldinu áður, en SR-ingar höfðu annað tromp uppi í markmannserminni sem er hinn sívinnandi og myndarlegi leikmaður Ragnar Kristjánsson. Hann var "munstraður í Mölla-búninginn" hans Ævars og það átti eftir að borga sig. SA menn mættu sigurvissir til leiks og hófu leikinnn á að skjóta á markið úr öllum hugsanlegum færum, því þeir töldu að Ragnar myndi verja lítið sem ekkert í markinu. Að vísu fékk Ragnar á sig 7 mörk sem alls ekki verða öll skrifuð á hann (kannski nokkur!). SR-ingar voru ákveðnir að bæta fyrir ruglið í leiknum kvöldinu áður og vitandi það að vera með útleikmann í marki, þá var bara lagt upp með þá einföldu taktík að hafa gaman af leiknum og skora fleiri mörk en SA myndi skora hjá okkur. Ragnar varði oft á tíðum eins og berserkur og SR-ingar spiluðu íshokkí eins og sönnum meisturum sæmir. Eftir tiltölulega jafnan leik framan af, sigu meistararnir framm úr og sigruðu örugglega með 10 mörkum gegn 7. Þessi leikur sýndi, þrátt fyrir að útileikmaður væri í marki hjá SR, að þegar SR-ingar spiluðu "sitt íshokkí" bæru þeir verðskuldað titilinn, "besta lið á Íslandi í íshokkí í 2.flokki" veturinn 2008-2009. Til hamingju 2. flokkur SR.
Mörk:
Tómas Tjörvi 3/2
Pétur Maack 3/
Kristján Gunnlaugs 1/3
Björn Róbert 1/2
Jón Þröstur 1/1
Jón Reyr 1/0
Andri Þór 0/1
Brottvísanir: 22 mínútur