Dags: 27.04.2009 12:51
Næstkomandi miðvikudag, 29.apríl, verður Uppskeruhátið SR og hefst hún kl.18:10 niður í Skautahöllinni í Laugardal. Veittar verða viðurkenningar í yngri flokkum og grillað svo eitthvað sé nefnt. Það er um að gera að skella sér á ísinn með fjölskyldu og vinum og skemmta sér saman á síðasta æfingardegi vetrarins.
Gleðilegt sumar!!