Dags: 23.04.2009 01:47
Nú er komið að lokaferð 6/7 flokks til Akureyrar. Farið verður frá Skautahöllinni í Laugardal, mæting kl 11:30, farið verður í síðasta lagi kl 12:00 föstudaginn 24.apríl. Rútan mun koma við í Egilshöll og þar munu Bjarnarmenn koma um borð og brunað verður norður. Einsog venjulega mun verða stoppað í Staðarskála en þar munu drengirnir gæða sér á samloku og meðlæti( því er ekki þörf á því að taka með nesti).
Þegar komið er norður verður Bjarnarmönnum skutlað á sinn gististað og svo brunað með SR drengina í Glerárskóla þar sem gist verður. Kvöldmaturinn á föstudaginn verður frá Bautanum, en þeir munu skutlast með kjúklingabita og meðlæti upp í skóla.
Á laugardaginn verða drengirnir ræstir kl 06:30 þar sem fyrsti leikur er kl 07:45. Leikið verður til kl rúmlega 11 en þá verður gert hlé til að koma að leik í alþjóðlegu kvennamóti sem er einnig haldið í Skautahöllinni á Akureyri þessa helgi. Þetta hlé verður notað til að fara upp í skóla, ganga frá öllum farangri og snæða hádegismat.
Mótið hefst svo aftur kl 13:55 og verður spilað til kl 17:20 en mótinu er svo slúttað með pizzaveislu og að henni lokinni verður brunað í bæinn, reynt verður að leggja af stað ekki seinna en kl 18:00.
Á leiðinni í bæinn verður svo stoppað í Staðarskála til að snæða kvöldmat og áætlað er að koma í bæinn ca 23:00.
Það sem þarf að muna að taka með :
Hokkígallinn, muna að yfirfara hann áður en farið er.
Skautar
Kylfa
Dýna
Svefnpoki/sæng
Föt til skiftanna
Góða skapið
Ekki gleyma að merkja allann farangur, bæði fatnað og hokkígalla.
Munið að stranglega er bannað að taka með sælgæti, gos eða orkudrykki.
Einnig er allsekki ætlast til að drengirnir taki með sér pening, þeim verður séð fyrir mat í öll mál.
Það kostar 8000kr fyrir hverni iðkanda í ferðina, foreldrar sem fara með borga 3000kr.Auk þess þurfa þeir foreldrar sem ætla sér að vera með í föstudagskvöldmatnum að borga það sér, nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku í þeirri máltið í síðasta lagi þegar rútan leggur af stað á föstudaginn.
Þeir sem vilja borga í gegnum banka geta lagt inn á reikning SR hokkídeildar reikningsnúmer : 0101-26-22309 kt : 561092-2309 og mun að senda tilkynningu á netfangið ishokki@skautafelag.is setja nafn iðkanda í skýringu( dæmi: Jón Jónsson ak ferð). Auk þess verður hægt að borga við rútuna áður en lagt er af stað á föstudaginn(þarf þá að vera með pening).
Dagskrá mótsins er hægt að nálgast hérna: http://www.sasport.is/skrar/.xls/dagskra_6_7_fl_mot250409.xls
Farastjóri í ferðinni verður Jón Einar Þórðarson, pabbi Fannars. Við viljum minna þá foreldra sem fara með norður að margar hendur vinna létt verk. Hlutverk fararsjtjóra er fyrst og fremst að hafa yfirsýn o g að sjá um að allt gangi vel fyrir sig, en æskilegt er að allir leggji sitt af mörkum til að láta ferðina ganga sem best fyrir sig, t.d. með því að taka þátt í matmálstímum, ræsa liðið um morguninn og að ógleymdu að aðstoða í búningsklefa þar sem oft gengur mikið á við að undirbúa sig fyrir leikina.
Við óskum öllum góðrar ferðar og góðrar skemmtunar um helgina.