Dags: 18.04.2009 16:10
Núna um helgina verður Selects Hockey í Egilshöll. Það er
Yfir áttatíu af efnilegustu íshokkíleikmönnum beggja vegna Atlantsála eru komnir hingað til lands til æfinga og keppni í Egilshöll í fjóra daga. Þetta eru strákar á aldrinum 12-14 ára og núna í ár taka 26 íslenskir leikmenn þátt frá SR, SA og Birninum fæddir '94 - '96.
Frá okkur í SR voru valdir:
- Daníel hrafn Magnússon '95
- Kristinn Freyr Hermannson '95
- Sölvi Sigurjónsson '94
- Kári Guðlaugsson '94
- Daníel Steinþór Magnússon '95
- Bjarki Reyr Jóhannesson '96
- Jón Reyr Jóhannesson ' 94
- Elías Nökkvi Gíslason '96
- Sindri Snær Gíslason '94
hópnum sem hér er á ferðinni er úrval þeirra bestu í heimi, og er hann á vegum samtaka sem heita Selects Hockey, en undanfarin ár hafa um 15-20% leikmanna úr þeirra röðum endað í NHL-deildinni í íshokkíi. Leikmennirnir ungu koma úr liðum víðsvegar að úr heiminum, m.a. frá Bandaríkjunum, Kanada, Tékklandi, Rússlandi, Svíþjóð og Finnlandi. Í fylgd með þeim er hópur um sextíu þjálfara og foreldra. Þeirra á meðal eru þjálfarar sem spilað hafa í NHL-deildinni.
Sergei Zak, yfirþjálfari Bjarnarins og landsliðsþjálfari U18-liðsins, hefur haft veg og vanda af undirbúningi mótsins.
Er þetta annað árið sem mótið er haldið hér, og tókst það ákaflega vel í fyrra. Var það mikil lyftistöng fyrir þátttakendur og gefur okkar efnilegustu ungmenninum kærkomið tækifæri að spreyta sig.
Við hvetjum alveg eindregið alla félaga SR = bæði foreldra og iðkendur að kíkja við í Egilshöllina og sjá þrautþjálfaða hokkístráka sína snilldartakta. Er þetta okkar eina tækifæri á ári - hér á landi að sjá "útlenskt" íshokkí í lifandi mynd!!!!