Dags: 10.04.2009 19:49
Íslendingar máttu sín lítils gegn kröftugu liði Eistlands. Fyrirfram var búist við hörkuleik enda voru það Eistlendingar sem komu niður úr fyrstu deild í fyrra og því flokkaðir sem sterkastir í riðlinum. Þeir áttu fyrst leik við Serba sem fór 5 - 4 fyrir Eistlendingum eftir tví-framlengdan leik. Það er því nokkuð ljóst að Serbar og Eistlendingar eru tvö sterkustu lið riðilsins.
Íslendingar byrjuðu vel og náði Steinar Grettisson (SA) að skora fyrir Ísland fljótlega í fyrstu lotu. Það var skammgóður vermir því að Eistlengindar jöfnuðu stuttu síðar og var síðan nánast einstefna í markaskorun það sem eftir lifið leiks. Loturnar fóru 4 - 1, 5 - 0, 7 - 0. Lokastaðan varð því 16-1 fyrir Eistlandi. Núna er ekkert annað í stöðunni en að rífa sig upp og undirbúa sig fyrir næsta leik sem er gegn Serbum á morgun.
Nánar um þennan leik á mbl.is
» http://mbl.is/mm/sport/frettir/2009/04/10/steinlagu_gegn_eistlendingum/
Áfram Ísland!