Fréttir

Total items: 1194

A-landslið: Kína 3 - Ísland 2 - eftir framlengingu

Dags: 07.04.2009 11:42


Það er ljóst að Íslendingar komu Kínverjum í opna skjöldu í Serbíu í dag þar sem Íslendingar náðu að jafna með marki hjá Agli Þormóðssyni þegar innan við 2 mínútur voru eftir af leiknum og náðu að knýja fram framlengingu.  Kínverjar voru hinsvegar sterkari aðilinn í á endanum og náðu að skora úr vítaskoti þegar rúmar 4 mín voru liðnar af framlengingu.

Næsti leikur verður við N-Kóreu á morgun kl.13:30 að staðartíma, 11:30 að íslenskum tíma.

Hægt er að sjá umfjöllun um leikinn á mbl.is

Áfram Ísland.