Dags: 04.04.2009 11:20

A-landslið karla er lagt af stað til Novi Sad í Serbíu til keppni í 2.deild heimsmeistaramótsins í íshokkí. Íslendingar eru þessum slóðum vel kunnugir og hafa keppt í þessum heimshluta oftar en menn muna. Þar ytra munu þeir spila við Kínverja, Eistlendingar, Ísraela, N-Kóreu og að ógleymdum heimamönnum, Serbum. Það er óhætt að segja að Eistlendingar séu okkar erfiðustu andstæðingar í þessu mót og má segja að engin leikur verður auðveldur fyrir þetta unga lið sem var valið til að spila fyrir Íslands hönd.
Richard Okkar Tahtinen er með skipstjórnarvöldinn á landsliðsskútunni þetta árið og verður fróðlegt að sjá hvernig hann stýrir Landsliðinu í þessari keppni.
Þeir sem vilja lesa nánar um þessa keppni er bent á þennan tengil sem vísar á móta-vef alþjóðaíshokkísambandsins.