Dags: 30.03.2009 12:39
SR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í gærkvöld með sigri á SA 7 - 4. SR-ingar komu ákveðnir til leiks og byrjuðu fyrstu lotuna mjög vel með því að skora 3 mörk gegn engu SA. SA náðu að bíta örlítið frá sér í öðrum leikhluta en SR-ingar héldu forystunni og skoruðu 2 mörk gegn 3 SA, staðan í leiknum orðin 5 - 3. Í þriðja leikhluta juku SR-ingar en við markatöluna hjá sér, annað markið kom úr glæsilegu brake-away en síðara markið kom úr vítaskoti. Lesa má nánar um leikinn á ihi.is