Fréttir

Total items: 1194

SA kreisti fram sigur í framlengingu - fjórði leikur í dag kl.17:00

Dags: 29.03.2009 10:39


Leikurinn í gærkvöld var margt eins og undanfarna úrslitaleiki.  SA byrjaði af krafti og náði að komast í þægilega stöðu 4 - 0 (í leik gærkvöldsins) og voru greinilega orðnir nokkuð sáttir með fengin hlut.  SR-ingar voru hinsvegar ekki á þeim buxunum að láta það gerast og börðust af krafti og skoruðu næstu 4 mörk án þess að SA næði að svara.  Þegar bjallann gall í enda 3 leikhluta var staðan ennþá jöfn og framlengja þurfti leikinn.  Beint eftir uppkast í okkar svæði náðu SA menn að skora fram hjá Ævari Björnssyni, sem átti súper-stjörnu leik.  Það voru nokkuð súrir SR-ingar sem fóru til búningsklefa og  í rútu heim. 

Næsti leikur er í kvöld kl.17:00 og það er skyldumæting....