Dags: 25.03.2009 22:43
Fyrir leik kvöldsins var mikil eftirvænting. SR-ingar höfðu unnið norðanmenn á Akureyri, 5-6, í fyrsta leik úrslitanna. Fyrirfram var búist að Akureyringar kæmu einsog grenjandi ljón í annan leik liðanna í kvöld, og það gerðu þeir. Fyrstu lotunna voru SA-menn sterkari og komu greinilega vel undirbúnir og ákveðnir til leiks og náðu að skora fljótlega í lotunni. Gauti Þormóðsson náði að jafna leikinn stuttu síðar. SR-ingar náðu ekki ekki að spila sinn leik það sem eftir var lotunnar og Sa-menn náðu að skora alls 2 sinnum í viðbót áður en lotan var úti. Staðan var því 1 - 3 þegar liðin stigu aftur inná ísinn. SA náði enn að bæta við í annari lotu og var staðan orðin 1 - 4 og á brattan að sækja fyrir SR-inga. En síðan upphefst merkilegur kafli í leik SR. Eitthvað small í höfði leikmannana sem léku við hvern sig fingur og sóttu án afláts. Þessi vinnusemi og áræðni skilaði SR-ingum alls 3 mörkum og staðan orðin 4 - 4, voru þar að verki þeir Egill Þormóðsson (1) og Arnþór Bjarnason (2). Í síðustu lotu leiksins börðust bæði lið af krafti og oft mátti litlu muna að SA næði að komast yfir. En þeir tóku ekki markvörsluhæfileika Ævar Þórs Björnssonar inní reikninginn þar sem hann stöðvaði nær allt sem vörninn missti framhjá sér.. og gott betur. Þegar innan við mínúta var eftir af leiknum náði Egill Þormóðsson pekkinum af Akureyringum og skilaði honum í netið við gríðarlegan fögnuð þeirra 700 áhorfenda sem höfðu lagt leið sína í Skautahöllina í Laugardal.
Nánari tölfræði þegar hún kemur í hús.
Næsti leikur verður norður á Akureyri kl.17:00 ... kannski að það væri ekki úr vegi að stefna á norðurferð ?