Dags: 19.03.2009 16:28
Nú er komið að síðasta móti þessa tímabils hjá 4. og 5. flokk, en það verður haldið á Akureyri helgina 20.-22. mars. Mótaplanið er komið og er hægt að nálgast það á síðu SA ða með því að smella hérna Staðfest verð er 10þúsund fyrir hvern iðkanda, foreldrar sem ætla með rútunni og gista með krökkunum borga 4þúsund. Vinsamlegast gangið frá greiðslu sem allra fyrst með því að greiða inn á reikning félagsins 0101-26-22309, kt 561092-2309. Munið að senda kvittun á ishokki@skautafelag.is og setja kt/nafn iðkenda með í skýringu. Farið verður frá Skautahöllinn kl 13:00 föstudaginn 20.mars og er mæting í síðasta lagi kl 12:30. Allir þurfa að yfirfara búnaðinn sinn og tryggja að allt sé tekið með (skautar, kylfa, hlífar, hjálmur). Við mælumst með því að allir taki með sér létt nesti, bannað er að borða í rútunni en stoppað verður í Staðarskála og þá gefst tími til að borða nestið. Gist verður í Glerárskóla og þurfa allir að koma með dýnu, svefnpoka og kodda með sér. Sem fyrr verður séð fyrir öllu á Akureyri og eiga krakkarnir EKKI að taka með sér peninga. Áætlað er að mótinu ljúki um kl 16:00 á sunnudaginn og lagt verði í bæinn um kl 17:00. Kveðja Stjórnin.