Fréttir

Total items: 1194

U18: Úrslitin í dag kl.15:00

Dags: 15.03.2009 13:10


hokkifrettamyndir2008/img_1288.jpg

Núna í dag munu íslendingar og tyrkir leiða saman hesta sína í úrslitaleik á heimsmeistaramótinu í íshokkí 3.deild, liðum skipuð leikmönnum 18 ára og yngri.  Þessi lið eru búin að spila einusinni áður í þessu móti og endaði sá leikur með stórsigri íslendinga 18-1.  Tyrkir munu eflaust fjölmenna í GSIM Ice Arena í Erzurum til að hvetja sína menn til dáða.  Hvort að það dugar til gegn íslensku mulnings og marka vélinni verður ósagt látið.  Þeir sem vilja ólmir fylgjast með leiknum er bent á að fara á vef IIHF og þar verður hægt að sjá, þegar leikurinn hefst, tengill á beina textalýsingu á netinu.

Áfram Ísland!!

p.s Myndin, tekin af Birni Geir (heilsuráðunaut liðsins), sem meðfylgir er af þeim Ævari Björnssyni, Agli Þormóðssyni og Tómasi Tjörva Ómarssyni á góðri stundu.