Dags: 10.03.2009 13:56
Núna stendur yfir leikur Íslands og Írlands í heimsmeistaramóti leikmanna 18 ára og yngri. Mótið fer fram í Tyrklandi í nýsmíðaðri skautahöll og eru aðstæður allar þær bestu. Okkar strákar eru að fara mikinn þar ytra, t.a.m var Egill Þormóðsson með 5 mörk á móti Búlgaríu í gær, Björn Róbert með 2 mörk og í dag er hann komin með 1 mark gegn Írum og Tómas Tjörvi 1 mark (gegn Írum).
Það er nánast víst að aðal leikur mótsins verður á milli Íslands og Tyrklands og nánast víst, miðað við hvernig þetta mót er að spilast, munu þessi lið spila til úrslita í þessu móti.