Fréttir

Total items: 1194

MFL: Sigur í Egilshöll í gærkvöld !

Dags: 04.03.2009 13:54


Þeir sem lögðu leið sína uppí Egilhöll í gærkvöld urðu ekki fyrir vonbrigðum með þann hokkíleik sem var spilaður.  Þrátt fyrir 6-7 sigur á ungu liði Bjarnarins eru eflaust nokkrir leikmenn SR sem vilja fara í djúpa og mikla naflaskoðun.  Þó að markatalan gefi til kynna að leikurinn hafi verið jafn þá voru SR-ingar ávalt skrefi framar í leiknum.  Bjarnarmenn voru engu að síður duglegir að nýta þau færi sem SR-ingar gáfu þeim, oftar en ekki á silfurfati, og gátu á köflum truflað leik SR-inga töluvert.  SR-ingar spiluðu í gærkvöldi án Daniel Kolar og Gauta Þormóðssonar þar sem meiðsli og veikindi voru að hrjá þá fyrir leikinn.  Bjarnarmenn spiliu án Sergei Zak, Brynjars Þórðarssonar og Daða Heimissonar en í staðinn fengu fjölmargir ungir leikmenn að fylla í skörðin og leystu það verk ágætlega.

Mörk/stoðsendingar SR:

Egill Þormóðsson 2/1
Óskar Grönhólm 1/0
Ragnar Kristjánsson 1/0
Helgi Páll Þórisson 1/0
Steinar Páll Veigarsson 1/0
Svavar Rúnarsson 1/0
Pétur Maack 0/2
Þorsteinn Björnsson 0/2
Andri Þór Guðlaugsson 0/2
Arnþór Bjarnason 0/1

Brottrekstrar SR: 14 mín. 

SR-ingar fara núna á fullt í það að undirbúa sig fyrir úrslitin sem hefjast 23.mars á Akureyri.  Annar leikur í úrslitum verður síðan spilaður í Reykjavík 25.mars. Þriðji leikurinn verður síðan á Akureyri 27.mars og ef það þarf að spila 4 leikinn verður það í Reykjavík 29.mars og síðasti leikurinn á Akureyri 31.mars.  

Það er um að gera að taka þessa daga frá og fylgjast vel með!!