Fréttir

Total items: 1194

MFL: SR-ingar sækja Bjarnarmenn heim í kvöld

Dags: 03.03.2009 10:35


Síðasti deildarleikur vetrarins verður haldin í Egilshöllinni kl.19:30.  Bjarnarmenn fóru norður til Akureyrar um nýliðna helgi og áttu ekki erindi sem erfiði þar sem SA vann báða leikina nokkuð sannfærandi. SA situr nú á toppi deildarinnar með heimaleikjaréttinn í úrslitum sem hefjast 23.mars næstkomandi.  SR-ingar eru í öðru sæti og Björninn er í síðasta sæti þetta árið.  Það verður gaman að sjá hvernig Richard Tahtinenn, aðalþjálfari SR, mun stilla upp sínu liði gegn Bjarnarmönnum í kvöld þar sem þessi leikur er kærkomin æfing fyrir úrslitarimmuna.

Leikurinn hefst s.s kl.19:30 upp í Egilshöll og eru allir SR-ingar hvattir til að mæta og hvetja sitt lið áfram!