Dags: 03.03.2009 10:32
Á fjörugum aðalfundi íshokkídeildar SR sl. laugardag var kosin ný stjórn. Helgi Páll Þórisson var einróma kosinn formaður og væntum við mikils af honum. Aðrir í stjórn eru: Þorsteinn Jóhannsson, Jóhanna Þorsteinsdóttir, María K. Jónsdóttir og Sigurður Kristinsson. Varamenn eru: Sigrún Einarsdóttir og Gunnar Hrafn Gunnarsson, en hann er nýliði í stjórn.
Við þökkum fráfarandi formanni, Unnari Sumarliðasyni, frábær störf en vitum að hann mun þó eiga erfitt með að slíta sig í burtu og mun eflaust bjóða sig fram í ýmis störf strax og hann getur!