Fréttir

Total items: 1194

3FL: Björninn heimsækir SR-inga í kvöld kl.21

Dags: 24.02.2009 13:57


Í kvöld munu Bjarnarmenn í 3.flokki koma í Laugardalinn og spila við SR-inga.  Bjarnarmenn hafa verið sterkir í þessum flokki og eru efstir að stigum í deildinni með 21 stig.  SR-ingar eru í humátt með 12 stig en Bjarnarmenn eiga leik við SA, sem eru með 10 stig, til góða.  SR-ingar munu tilfinnanlega finna fyrir fjarveru Björns Róberts Sigurðssonar sem er að gera garðin frægan í Svíþjóð.  En það kemur maður í manns stað og í þessum flokki eiga SR-ingar marga góða drengi sem geta fyllt í skarðið.

Leikurinn hefst kl.21:00 í kvöld og er um að gera að fara niður í Laugardal og kíkja á þessa upprennandi hokkístjörnur.