Dags: 17.02.2009 12:55
Í kvöld munu SR-ingar og Bjarnarmenn etja kappi í Íslandsmóti 2.flokki karla í íshokkí. 2.flokkurinn hefur verið sigursæll í vetur og eru efstir í deildinni með nærri fullt hús stiga. SA og Björninn eru töluvert fjarri SR-ingum að stigum og er útséð með það að 2.flokkur verður Íslandsmeistari í íshokkí þetta árið. Þa er um að gera að kíkja niður í Laugardal í kvöld og horfa á þessa frísku leikmenn takast á. SR-ingar verða án Björns Róberts Sigurðarsonar þar sem hélt í víking til Svíaríkis að gera garðin frægan í Malmö. En maður kemur í manns stað og lítið annað um það að segja.
Leikurinn byrjar kl.21:00 í kvöld.