Fréttir

Total items: 1194

Mfl.: SR sigur og sæti í úrslitum tryggt

Dags: 05.02.2009 13:06


Meistaraflokkur SR tryggði sér sæti í úrslitum á Íslandsmótinu í íshokkí í gærkvöldi, er þeir sigruðu Björninn með 7 mörkum gegn 5.  Leikurinn sem fór fram í Skautahöllinni í Laugardal, var bráðskemmtilegur og æsispennandi.  SR lék án tveggja sterkra leikmanna, Gauti Þormóðsson var sendur í skammarkrókinn í síðasta leik og tók því út eins leiks bann og Þorsteinn "Sterki" Björnsson lét tækla sig niður í menntaskólafótbolta í vikunni og uppskar bólginn ökkla fyrir vikið. Þessi sömu lið áttust við um daginn og fór sá leikur í framlengingu, þar sem SR tryggði sér sigur með gulllmarki.  Líkt og í þeim leik voru það leikmenn Bjarnarins sem byrjuðu betur í gær og komust yfir með tveimur góðum mörkum 2-0. Sergei Zak skoraði fyrra markið á 5. mínútu eftir stoðsendingu frá Gunnari Guðmundssyni.  Það síðara skoraði Brynjar Þórðarson eftir stoðsendingar frá Kolbeini Sveinbjarnarsyni og Gunnari Guðmundssyni.  SR náði að minnka muninn á 12. mínútu og var þar að verki Egill Þormóðsson eftir stoðsendingu frá Daniel Kolar.  Ekki voru skoruð fleiri mörk í fyrsta leikhluta og Björninn leiddi leikinn 2-1.  SR-ingar komu frískir í annan leikhluta og fór þar Egill fremstur í flokki.  Hann náði að jafna leikinn á 26. mínútu eftir stoðsendingu Andra Þórs Guðlaugssonar.  Egill kórónaði síðan þrennu sína er hann náði forystunni fyrir SR á 33. mínútu eftir stoðsendingu frá Daniel Kolar.  3-2 var því staðan eftir annan leikhluta.  Þriðji leikhluti átti eftir að vera ansi fjörugur og hófu SR-ingar hann með látum, því strax á 41. mínútu náði Steinar Páll Veigarsson að auka forystu SR í 4-2, án stoðsendingar.  Þremur mínútum síðar kom stórskemmtilega útfærð sókn hjá SR-ingum, þar sem Ragnari Kristjánssyni tókst að skora eftir stoðsendingu Óskars Grönholm.  Staðan orðin ansi vænleg fyrir SR-inga 5-2 og allt stefndi í öruggan sigur þeirra.  En það má aldrei afskrifa lið Bjarnarins og með mikilli eljusemi og baráttu, auk þess sem SR-ingum tókst ótrúlega oft að koma sér í refsiboxið, tókst þeim að jafna leikinn.  Vilhelm Már Bjarnson minnkaði muninn í 5-3 á 46. mínútu eftir stoðsendingu frá Sergei Zak.  Aðeins einni mínútu síðar tókst Kolbeini Sveinbjarnarsyni að minnka muninn í 5-4.  Stoðsendingar hér áttu þeir Mattías Skjöldur Sigurðsson og Sergei Zak.  Þegar rúmar 7 mínútur voru til leiksloka jafnaði Hvergerðingurinn og fyrrum SR-ingur Úlfar Jón Andrésson leikinn með glæsilegu marki, setti pökkinn efst í markhornið.  Staðan orðin 5-5 og "allt að verða vitlaust" í Höllinni og en fjölmargir áhorfendur mættu á leikinn.  Þegar rétt um 5 mínútur lifðu leiks tókst SR að komast aftur yfir í leiknum, 6-5 og var þar að verki Björn Róbert Sigurðarson eftir stoðsendingu frá Helga Páli Þórissyni.  Bjarnarmenn reyndu allt hvað þeir gátu til þess að jafna leikinn og brugðu á það ráð þegar um hálf mínúta lifði leiks að taka Inga Þór markmann sinn útaf og setja auka sóknarmann inn á í hans stað.  En allt kom fyrir ekki og SR-ingar vörðust vel og þegar um 5 sekúndur voru eftir af leiknum náði Ragnar Kristjánsson pekkinum í varnarsvæði SR og sendi hann yfir ísinn og í autt mark Bjarnarins og 7-5 sigur SR staðreynd.    Eins og áður segir náðu SR-ingar að tryggja sér sæti í úrslitum með þessum sigri.  Leikið verður gegn Akureyringum í þeirri rimmu.  Að vísu eiga SR-ingar eftir að leika tvo leiki í deildinni við SA þann 13. og 14. febrúar n.k. og eru þeir leikir góður undirbúningur fyrir úrslitaleikina sem verða í lok mars.   Mörk og tölfræði:   Mörk SR:   Egill Þormóðsson 3/0 Ragnar Kristjánsson 2/0 Björn Róbert Sigurðarson 1/0 Steinar Páll Veigarsson 1/0 Daniel Kolar 0/2 Andri Þór Guðlaugsson 0/1 Helgi Páll Þórisson 0/1 Óskar Grönholm 0/1

Brottvísanir:   80 mín.

Mörk Bjarnarins:

Sergei Zak 1/4
Brynjar Þórðarson 1/0
Vilhelm Már Bjarnason 1/0
Kolbeinn Sveinbjarnarson 1/0
Úlfar Jón Andrésson 1/0
Gunnar Guðmundsson 0/2
Matthías S. Sigurðsson 0/1

Brottvísanir: 33 mín.