Fréttir

Total items: 1194

MFL: Björninn sækir SR-ingar heim - FRÍTT á leikinn

Dags: 03.02.2009 08:26


gallery/bjorninn_vs_sr_21102008/Images/28.jpg

Annað kvöld, miðvikudagskvöld kl 19:00, munu Bjarnarmenn sækja SR-ingar heim í annað skiptið á jafnmörgum vikum.  Bjarnarmenn bitu hressilega frá sér  í síðustu viðureign þar sem framlengingu þurfti til að knýgja fram úrslit.  Gauti Þormóðsson skoraði gullmark þegar 3 mínútur voru liðnar af framlengingunni og endaði leikurinn því 4 - 3 SR-ingum í vil.  Bjarnarmenn hafa sýnt það í vetur að þá ber ekki að vanmeta á lokasprettinum í deildinni þar sem þeir geta kroppað í stigin af báðum liðum þegar vel liggur á þeim.  SR-ingar eiga harm að hefna eftir ófarir helgarinnar, án þess að fara nánar útí það, og munu mæta með sinn besta leik annað kvöld.

FRÍTT Á LEIKINN!!
Ákveðið hefur verið að gefa frítt á leikinn þannig að það er um að gera að mæta niður í Skautahöllina í Laugardal með foreldra, systkini, frændur, frænkur, kunningja, vini og vinnufélaga og mynda góða stemmningu.  Hægt verður að grípa sér einhverjar veitingar á staðinum og ekki útilokað að það verði eitt happadrætti eða svo fyrir þá sem mæta.

Áfram SR!!