Fréttir

Total items: 1194

MFL: SA kemur í Laugardalinn laugardagskvöldið

Dags: 30.01.2009 22:00


img_8841.jpg

Núna um helgina munu SA-menn skella sér suður yfir heiðar og etja kappi við SR-inga sem hafa verið sigursælir undanfarin misseri. Eitthvað virðist flensa, meiðsli og leikbönn vera að hrjá bæði SA og Björninn en þeir Daði Heimisson og Brynjar Þórðarson voru ekki með  þegar Björninn mætti SR núna á miðvikudaginn síðasta. Jón B Gíslason er enn að jafna sig á handarbroti eftir tæklingu við Pétur nokkurn Maack.  Josh Gribben sem hefur verið hvað atkvæðamestur í liði SA, samkvæmt hinu danska kerfi , er nú komin í tveggja leikja bann, samkvæmt úrskúrði aganefndar. Þannig að SA verða án tveggja sinna bestu manna.  En SA jafnt og SR eiga góða leikmenn sem geta fyllt í skarðið þegar svona árar og ekki ólíklegt að SA mæti með sitt allra sterkasta lið til Reykjavíkur.  Ekki er ólíklegt að nokkrar gamlar kempur verða látnar spila lykilhlutverk í þessum leik með unga og upprennandi leikmenn sé til fulltingis.

SR-ingar hvetja alla þá sem hafa áhuga á íshokkí, og jafnvel alla sem vilja kynna sér sportið, að koma niður í Skautahöllina í Laugardal og hverja liðið sitt áfram!

Leikurinn hefst kl.19:00, stundvíslega.

Áfram SR!!