Fréttir

Total items: 1194

Björninn sækir SR heim í kvöld !

Dags: 28.01.2009 00:27


gallery/bjorninn_vs_sr_21102008/Images/15.jpg

Í kvöld mun Björninn heimsækja SR-inga í Laugardalinn.  Bjarnarmenn eru eflaust ennþá að sleikja sárinn eftir tvö töp á móti SA um nýliðna helgi og mæta eflaust einsog grenjandi ljón til leiks því að núna fer baráttan að hefjast fyrir alvöru hjá þeim ef þeir ætla ekki að missa af lestinni inn í úrslit, eða allavega gera góða atlögu að því.
SR-ingar hafa gott tækifæri á að sækja heimaleikjaréttinn í úrslitum ef þeir vinna komandi leiki.  Leikurinn í kvöld, miðvikudagskvöld, og á laugardagskvöldið og síðan aftur næsta miðvikudagskvöld eru mikilvægir leikir fyrir SR í þeim áætlunum um að sækja heimaleikjaréttinn til Reykjavíkur.

Leikurinn hefst kl.19:00 í Skautahöllinni í Laugardal og er um að gera að mæta snemma og fylgjast með liðunum hita upp og gera sig klára fyrir leikinn.