Dags: 25.01.2009 21:52
Núna á næstu 10 dögum er mikið um að vera hjá SR, þó aðalega hjá Meistaraflokki. Bjarnarmenn mæta á svæiðið á miðvikudagskvöldið og ætla sér eflaust að bæta stöðu sína eftir harmfarir nýliðinnar helgi. Bjarnarmenn tóku á móti SA-mönnum í Egilshöll og skemmst er frá því að segja að SA fór með sigur af hólmi í báðum leikjum. Bjarnarmenn virðast nú fjarlægjast möguleikann á því að geta blandað sér af einhverju viti í baráttuna um sæti í úrslitum, en það á aldrei að vanmeta Bjarnarmenn þar sem þeir hafa oftar en ekki reynst skeinuhættir á köflum og þá einmitt þegar sýst skildi.
Leikurinn á miðvikudagskvöldið á að byrja kl.19:00 og verður hann í Skautahöllinni í Laugardal. Næsti leikur MFL SR verður á laugardaginn næsta í Skautahöllinn í Laugardal. Verður þetta 3 skiptið sem SA kemur til Reykjavíkur í eina og sama mánuðinum. Síðan til að kóróna þessa leikjatörn hjá Meistaraflokki munu þeir spila annan leik við Björninn og þá næsta miðvikudag þar á eftir, eða 4.febrúar.
Að þessu tilefni verður því miður ekki Skautaskóli, eða æfing hjá 6-7.flokki næstkomandi miðvikudag eða miðvikudaginn 4.febrúar. Nánar um þessa leiki þegar nær dregur.
Áfram SR!!