Fréttir

Total items: 1194

2FL: Mikilvægur sigur í gær

Dags: 21.01.2009 12:39


2. flokkur SR vann mjög mikilvægan sigur í gær gegn Birninum á Íslandsmótinu í 2. flokki. 
Björninn hafði unnið þrjá síðustu leiki sína og með sigri gegn SR hefðu þeir geta blandað sér í toppbaráttuna af fullum krafti.  Leikurinn var hraður, skemmtilegur, prúðmannlega leikinn og umfram allt spennandi.  Jafnræði var með liðunum framan af, en þau skiptust á um að sækja.  Björninn náði forystu 1-0 með marki eftir face off þar sem SR-ingar sváfu aðeins á verðinum.  Þannig var staðan eftir fyrsta leikhluta.  Í byrjun annars leikhluta skoraði Björninn annað mark og staðan orðin 2-0 þeim í vil.  Björn Róbert Sigurðarson náði að minnka muninn með glæsilegu marki , án stoðsendingar, aðeins nokkrum sekúndum síðar.  En Bjarnarmenn bitu í skjaldarendur og náði stuttu seinna að auka forystuna í 3-1.  Áður en öðrum leikhluta lauk náði Pétur Maack að minnka muninn fyrir SR í 3-2 með ansi skondnu marki, eftir stoðsendingu frá Ragnari Kristjánssyni.  
Í þriðja leikhluta tóku síðan SR-ingar öll völd á ísnum og léku við hvern sinn skauta og fingur og með mikilli baráttu og leikgleði tókst þeim að skora 4 mörk og vinna leikinn þannig 6-3.  Kristjáni Gunnlaugssyni tókst að jafna leikinn, án stoðsendingar, með miklu harðfylgni í byrjun þriðja leikhluta og nokkrum mínútum síðar kom Andri Þór Guðlaugsson SR yfir með marki beint úr face off-i.  Tíu mínútum fyrir leikslok tókst svo Agli Þormóðssyni að skora gott mark án stoðsendingar og SR komið tveimur mörkum yfir.  Það var svo undir lok leiksins sem að Björn Róbert Sigurðarson kórónaði bæði góðan leik og 15 ára afmælisdaginn sinn með lúmsku skoti og marki sem innsiglaði 6-3 sigur SR-inga.  Stoðsendingar hér áttu þeir Kristján Gunnlaugsson og Úlfur Einnarsson.  SR-ingar fögnuðu endurkomu Richards þjálfara, en hann var mjög ánægður með leik sinna manna, hans menn gáfu sig allan í leikinn og börðust vel fyrir liðið. 
 
Tölfræði:
 
SR Mörk/stoð
 
Björn Róbert Sigurðarson 2/0
Pétur Maack                 1/0
Andri Þór Guðlaugsson    1/0
Kristján Gunnlaugsson     1/1
Egill Þormóðsson            1/0
Ragnar Kristjánsson        0/1
Úlfur Einarsson              0/1
 
Brottvísanir:                 4 mín.
 
Björninn Mörk/stoð
 
Kolbeinn Sveinbjörnsson  1/1
Arnar Bragi Ingason        1/0
Hjörtur Geir Björnsson     1/0
 
Brottvísanir:                 16 mín.