Dags: 14.01.2009 19:33
Í kvöld leiða saman hesta sína SR og Björninn í 3.flokki. Þessir leikir hafa verið spennandi og skemmtilegir í vetur og verður það án efa í kvöld. SR vann góðan sigur á SA um síðustu helgi, 7-5, og voru þar Björn Róbert og Jón Reyr hvað atkvæða mestir. Ekki er ólíklegt að Bjarnarmenn hafa ýmislegt á prjónunum fyrir þá félaga en hvort af þeim plönum verður kemur í ljóst í kvöld.
Áfram SR!!