Fréttir

Total items: 1194

SR-ingar halda til Egilshallar í kvöld!

Dags: 13.01.2009 09:09


Í kvöld kl.19:30 munu SR-ingar halda til Egilshallar og etja þar kappi við Bjarnarmenn.  SR-ingar eru sigureifir eftir sigur á SA um nýliðna helgi.  SR-ingar hafa náð taktinum á ný eftir brösugt gengi fyrir áramót og er nú við hlið SA að stigum.  Bjarnarmenn eru hinsvegar hvergi smeykir því að þeir hafa laggt SR-inga áður og ætla sér að reyna það aftur núna í kvöld.  Guðmundur Björgvinsson tekur sér stöðu stýrimanns á bekknum í fjarveru Richard Tahtinen sem er í tímabundnu leyfi.

Leikurinn hefst kl.19:30 í Egilshöll og eru allir hvattir til að mæta og hvetja sitt lið!

Áfram SR!!