Fréttir

Total items: 1194

Góðir sigrar hjá meistraflokki og 3.flokki

Dags: 11.01.2009 12:18


Í gærkvöldi lék Meistaraflokkur og 3.flokkur SR við SA.  Meistaraflokkurinn lék fyrri leik kvöldsins en SR-ingar voru fullir sjálfstrausts eftir leikinn á föstudagskvöldið þar sem SR-ingar sýnu mikinn karakter og unnu leikinn með eins marks mun sem var skorað í enda 3.lotu.  Leikurinn í gærkvöldi hafði uppá sömu dramatík uppá að bjóða og þeir fjölmörgu sem lögðu leið sína í Skautahöllina urðu svo sannarlegar ekki fyrir vonbrigðum.  Fyrir leikinn var ljóst að bæði lið urður fyrir blóðtöku.  SA misstu úr sínum röðum íshokkímann ársins, Jón Gíslason vegna handleggsbrots, og Andra Má Mikaelsson sem þurfti að taka út leikbann.  Úr röðum SR-inga duttu út Guðmundur Björgvinsson, með hné meiðsl, og Árni Valdi Bernhöft, með búkmeiðsl. Í enda fyrstu lotu urðu SR-ingar fyrir en frekari blóðtöku þegar markaskorarinn Egill Þormóðsson meiddist eftir samstuð og var ekki meira með það sem eftir lifði leiks. Liðinn skiptust á að skora, Akureyringar áttu frumkvæðið í leiknum, en SR-ingar náðu að jafna jafn harðan og náðu síðan að sigra með eins marks mun, 5-4, sem var skorað undir lokin á 3 lotu.  Var þar að verki stóri bróðir Egils, Gauti Þormóðsson.  Andri Guðlausson fór einnig mikinn í leiknum og skoraði mikilvægt mark eftir gott samspil þeirra Tómas Tjörva og Péturs Maack. Liðið í heildsinni spilaði feiknar vel og náðu oftar en ekki að spila einsog sannir verðandi Íslandsmeistarar.  SR-ingar þurfu að spila þjálfara lausir sökum þess að þjálfari liðsins, Richard Tahtinenn, varð frá að hverfa sökum persónulegra ástæðna.  Á bekkinn steig Guðmundur Ragnar Björgvinsson, haltrandi, og stýrði bekknum með stakri prýði. Honum til fulltingis var Sigurður Kr.

Mörk SR:
Tómas Tjörvi Ómarsson 2
Andri Þór Guðlaugsson 1
Steinar Páll Veigarsson 1
Gauti Þormóðsson 1
   3.flokkur SR sýndi sama karakter í leik sínum í gærkvöldi.  Leikurinn endaði 7-6 SR í vil og fóru þeir Björn Róbert, Jón Reyr og Bjarki Reyr mikinn í liði SR-inga.

Mörk/Stoð SR: Björn Róbert     4/1
Jón Reyr          1/2
Bjarki Reyr       1/0
Arild               1/0