Fréttir

Total items: 1194

MFL: Góður sigur hjá SR-ingum í gærkvöld

Dags: 10.01.2009 00:20


Í gærkvöld tók Meistaraflokkur SR-inga á móti Meistaraflokki SA.  Mikil eftirvænting var fyrir leikinn þar sem þetta var fyrsti leikur liðanna eftir jólafrí.  Það er hægt að segja að leikurinn hafi farið rólega af stað og liðinn voru bersínilega en að stíga uppúr jólasteikinni og voru bæði lið að spila með rólegasta móti.  SR-ingar voru fyrri til að skora en Akureyringar voru jafn fjótir að jafna leikinn.  Egill Þormóðsson fór mikinn í leik SR-inga, með 3 mörk (hat-trick), og sömuleiðis fór Daniel Kolar mikinn í vörn og sókn SR-inga.
Liðið sýndi mikinn karakter að jafna leikinn 3 sinnum í leiknum og ná síðan að kreista fram sigur markið um miðbik 3 lotunnar og héltu allt til enda.  Spennandi leikur sem eflaust flestir þeir sem höfðu lagt leið sína niður í Skautahöllina hafa haft gaman af.

Meira um leikinn þegar tölfræðin kemur í hús.

Næsti leikur þessa sömu liða er í kvöld, laugardagskvöld, kl.19:00.  Beint á eftir munu 3.flokkur þessara sömu liða spila og er spennan engu minni í þeirri deild.