Dags: 06.01.2009 12:44
2.flokkur Skautafélags Reykjavíkur tekur á móti Bjarnarmönnum í Skautahöllinni í Laugardal kl.20:45. Leikir þessara liða hafa verið nokkuð skemmtilegir í vetur og er því um að gera að skella sér niður í Skautahöll og berja þessa drengi augum. Samkvæmt tölum frá ÍHÍ eru okkar strákar ósigraðir í vetur og eru með fullt hús stiga. Bjarnarmenn hafa ennþá ekki unnið leik og eiga þeir því harm að hefna. Leikurin byrjar sem fyrr segir kl.20:45.