Dags: 16.12.2008 16:56
Jólasamkunda fyrir eldri félagsmenn, liðstjóra, þjálfara og aðra velunnara verður laugardaginn 20. desember kl. 20 í samkomusalnum fyrir ofan stúkuna. Í dagskránni sem þar verður boðið upp á mun kenna ýmissa grasa. Kastið nú frá ykkur kökuuppskriftunum, Ajaxinu og öðrum partýum. Það verður langskemmtilegast hjá okkur! Komið með drykki að eigin vali.