Dags: 10.12.2008 09:05

Þeir sýndu það í gærkvöldi, 2.flokkur, að þeir eru fullfærir um að spila fantagott hokkí og þeir sem lögðu leið sína í Egilshöll urðu ekki fyrir vonbrigðum með leikinn. Hraðinn var gífurlegur og skiptust liðinn á að sækja nánast látlaust allar loturnar. Eftir fyrstu lotu voru Bjarnarmenn yfir 2 - 1 og leikurinn var allur í járnum. Í annari lotu snéru SR-ingar leiknum sér í vil og skoruðu 3 mörk gegn einu marki Bjarnarmanna. Í síðustu lotunni voru liðinn ekkert að slá af og sóttu sem aldri fyrr. SR-ingar náðu þó að skora eina mark lotunnar án þess að Bjarnarmenn næðu að svara fyrir sig og endaði leikurinn með góðum sigri SR-ingar 3 - 6.
Að vanda, af öðrum ólöstuðum, fór Egill Þormóðsson mikinn í leiknum með 3 mörk og eina stoð. Björn Róbert var það einnig, sýndi það að hann er harður í horn að taka þó að hann sé ekki mikill í vextinum. Andri Þór Guðlaugsson átti eflust einn sinn besta leik í vetur í gærkvöldi þar sem hann var stöðugt ógnandi, mikil yfirferð og skoraði tvö mörk.
Það er gott til þess að vita að framtíðinn er björt hjá SR-ingum þar sem þessi aldursflokkur í SR er ósigraður og er liðið burðugt, sókndjarft og ákveðið. Eitthvað sem aðrir flokkar í SR eiga að taka sér til fyrirmyndar.
Mörk og stoð:
Egill Þormóðsson 3/1
Andri Þór Guðlaugsson 2/0
Tómas Tjörvi Ómarsson 1/0
Kristján F. Gunnnlaugsson 0/1
Björn Róbert Sigurðarson 0/1
Pétur Maack 0/1
Ævar Þór Björnsson 0/1
Sturla Gíslason 0/1
Ragnar Kristjánsson 0/1