Fréttir

Total items: 1194

MFL: Björninn kemur í heimsókn í Laugardalinn!

Dags: 02.12.2008 11:09


gallery/bjorninn_vs_sr_21102008/Images/83.jpg

Annað kvöld mun Björninn koma í Laugardalinn og etja kappi við SR-inga í Meistaraflokki.  Verður þetta 4 leikur Bjarnarmanna á tæpum 2 vikum en þeir unnu okkur SR-inga heldur betrur á þeirra heimavelli og fóru síðan norðu til Akureyrar þar sem þeir spiluðu 2 leiki á jafnmörgum dögum.  SR-ingar hafa verið í góðri naflaskoðun eftir ófarirnar gegn Birninum í síðustu viku.  Það er ekki logið að Bjarnarmönnum hefur vaxið ásmeginn undanfarna leiki þar sem þeir hafa fengið viðbót við leikmannaflóruna hjá sér sem hafa bæði styrkt vörn og sókn.
SA-menn fengu að hafa fyrir hlutunum á Akureyri þegar Bjarnarmenn komu þar og gerðu usla og máttu þeir hafa sig allan við að missa þá ekki framúrsér ef marka má viðtal við fyrirliða SA, Jón B Gíslason, sem rómaði gæði íslensks íshokkís.
Leikurinn hefst kl.19:00, stundvíslega, í Skautahöllinni í Laugardal og ekki er ólíklegt að stemmning verði í höllinni svona rétt fyrir jól.