Dags: 28.11.2008 10:32
Eftir ófarirnar í vikunni eru SR-ingar að sleikja sárinn og rísa uppá ný. Meistaraflokkur SR mun eflaust funda eitthvað um helgina til að fara yfir stöðuna í sínum leik og kanna hvort að einhverju megi ekki breyta. Það er morgunljóst að sá leikur sem var spilaður í vikunni er ekki eitthvað sem Meistaraflokkur er tilbúin að endurtaka í bráð. En það er þannig að öllum stórliðum er hollt að tapa, bara til þess að menn nái að halda jarðsambandi. Þau snúa yfirleitt sterkari og betri til baka. Næsti leikur Meistaraflokksins verður 3.desember á móti Birninum og verður sá leikur í Skautahöllinni í Laugardal.
Um helgina verða spilaðir tveir leikir í Meistaraflokki. Eru það SA og Björninn sem munu takast á norður á Akureyri. Er þetta önnur helgin í röð sem SA fær sunnanlið í heimsókn í tvíhöfðaleik (double-header). Einhverjar mannabreytingar hafa orðið hjá Bjarnarmönnum síðan í upphafi vetrar, t.a.m hefur Úlfar Jón Andrésson komið heim úr sjávardjúpum undan ströndum Balí.
Vörninn hefur einnig styrkts þar sem varnarmaðurinn Róbert Freyr hefur snúið heim frá Bandaríkjunum eftir að hafa verið látin þræla í sóknarleik þar ytra. Einnig mun Bryjnar Þórðarson snúa aftur á ísinn eftir 2 ára hlé.
SA fékk til bara frá Svíaríki Orra nokkurn Blöndal og hefur hann verið látin spila sókn frá því að hann kom heim núna nýverið.
Það verður án efa skemmtilegt að sjá hvernig SA tekur á móti Birninum, sem er vígreyfur eftir stórsigur á okkur SR-ingum. SA-menn hafa eflaust farið í einhverja naflaskoðun eftir stórsigur SR-inga um síðustu helgi þar sem SR-ingar léku við hvern sinn fingur á meðan SA-menn virtust láta skapið hlaupa með sig í gönur og gott betur en það.
Það er sumsé spennandi helgi framundan og það verður gaman að sjá hvort að þetta blessaða danska kerfi fari nú ekki að hrökkva í gang þannig að hægt verður að fylgjast með gangi leiksins á netinu.