Dags: 22.11.2008 23:53
Í kvöld voru SR-ingar að spila sinn leik. Varnarleikur SA manna, sem hefur verið rómaður á vef SA manna, mátti sín lítils gegn sókndjarfu liði SR. Strax frá upphafi leiksins voru SR-ingar á því að láta ekki leik gærkvöldsins draga dilk á eftir sér. SR-ingar réðu lögum og lofum nær allan leikinn, þrátt fyrir slappan leikhluta um miðbik. Á endanum sigraði SR 5 - 9 eftir mikla og góða baráttu.
Næsti leikur hjá MFL verður í Egilshöll næsta þriðjudag