Fréttir

Total items: 1194

MFL: Tap í leik gærkvöldsins

Dags: 22.11.2008 12:48


Í gærkvöldi áttust við SR og SA í meirstaraflokki norður á Akureyri.  Strax í fyrstu lotu náðu SA undirtökunum eftir slælega byrjun hjá SR.  SR-ingar týndust hvað eftir annað í refsiboxið sem SA náði að nýta sér til hins ýtrasta.  Staðan var orðin 4 - 1 þegar liðinn fóru til búningsklefa eftir fyrstu lotu.  Í annari lotu var meira jafnræði með liðunum og var annað að sjá til SR þar sem baráttan var meiri en í fyrstu lotu en ennþá náðu SR-ingar að geyma mann sinn í refsiboxinu, en SA náði ekki að nýta þau tækifæri jafn vel og liðinn skildu eftir aðra lotu með sitt markið hvort.  Í þriðju lotu var sama uppá teningnum, þ.e.a.s jafræði og sitt markið hvort.  Mörk SR skorði Arnþjór "hinn týndi" Bjarnason, eitt mark í hverri lotu.  Daniel Kolar átti tvær stoðsendingar í þessum mörkum.

Það er alveg ljóst að þegar SR-ingar eru fimm á ísnum hafa SA-menn fá vopn í höndunum og leikurinn er nokkuð jafn.  SR-ingar þurfa hinsvegar að halda sig úr refsiboxinu ef þeir ætla sér að setja sitt mark á leikinn.

Næsti leikur hjá Meistaraflokki er kl.18 í dag og 3.flokkur spilar þar beint á eftir.  Nánar um þá leiki síðar.