Fréttir

Total items: 1194

MFL: Leikur í kvöld kl.22:00 á Akureyri

Dags: 21.11.2008 16:42


gallery/bjorninn_vs_sr_21102008/Images/92.jpg

Núna í þessum skrifuðu orðum eru liðsmenn meistaraflokks og 3.flokks SR að rúlla í rútu yfir heiðar á leið til Akureyrar.  Það er engin lygi að leikur kvöldsins fer fram á afar ókristilegum tíma eða kl.22:00 (já... s.s kl.tíu) í kvöld í Skautahöllinni á Akureyri.  Það ríkir mikiil eftirvænting fyrir þennan leik þar sem leikmenn SR í meistraflokki tóku vel á móti Bjarnarmönnum í síðustu viku sem og unnu sannfærandi.  Þriðji flokkur er einnig í góðu leikformi þar sem þeir spiluðu við Björninn einnig núna á þriðjudagskvöld þar sem leikar fóru 3-5 Bjarnarmönnum í vil, en minnstu mátti muna að SR-ingar næðu að jafna leikinn í 3.lotu eftir mikla sóknar tilburði.
Á morgun mun Meistaraflokkur og 3.flokkur spila við SA fyrir norðan og hefst Meistaraflokksleikurinn kl.18:00 og 3.flokkur spilar beint á eftir.  Þannig að það er mikið um að vera í hokkíinu, þessa helgi sem aðrar.