Dags: 21.11.2008 01:22
Langar þig að prófa íshokkí ? SR hefur staðið hinum félögunum að baki hvað varðar íshokkí kvenna og tími til kominn að bæta úr því. Nú hvetjum við stelpur á öllum aldri til að koma og prófa íshokkí. Ef þú ert 14 ára eða eldri og getur staðið á skautum þá skaltu kíkja til okkar á æfingu á sunnudagskvöld kl 19:30, hressar stelpur (mis ungar) fara á ísinn kl 20:15. Ef þú ert yngri þá hvetjum við þig til að kíkja á æfingu á mánudegi kl 17:00, miðvikudegi kl 18:10 eða laugardegi kl 9:00 og okkar frábæru þjálfarar finna fyrir þig rétta flokkinn.
Þetta er frábær skemmtun og afbragðs líkamsrækt mættu frítt í einn tíma og sjáðu hvort þú hafir ekki gaman af.