Dags: 18.11.2008 09:19
Í kvöld mætast 3.flokkur SR og Bjarnarins í Skautahöllinni í Laugardal. Bjarnarmenn hafa verið sigursælir í þessum aldursflokki og eru nú efstir í deildinni með 9 stig. SR-ingar og SA eru jafnir að stigum, eða með 6 stig hvor. Það verður án efa hart barist í Laugardalnum í kvöld, bæði lið hafa að skipa frískum leikmönnum sem eru líklegir til afreka. Það er um að gera fyrir íshokkíáhugamenn að skella sér í Laugardalinn, fá sér kaffibolla, og horfa á þessa ungu menn takast á.
Leikurinn byrjar sem fyrr segir kl.20:00 í Skautahöllinni í Laugardal.