Fréttir

Total items: 1194

Stórri hokkíhelgi lokið í Laugardalnum

Dags: 17.11.2008 09:18


gallery/bjorninn_vs_sr_21102008/Images/29.jpg

Núna um nýliðna helgi stóð yfir Íslandsmót í 5. og 4.flokki og mættu til leiks, að auk SR, Björninn og Skautafélag Akureyrar.  Spilaðir voru alls 19 leikir yfir helgina og gekk mótið vel fyrir sig og allir þátttakendur skemmtu sér vel.
SR-ingar þakka Bjarnarmönnum og SA-fólki heimsókina, vel og prúðmannlega leikið mót.
Á mótum sem þessum sést vel hvað barna og unglinastarf félaganna hefur fleytt fram síðustu árinn hvað varðar leikni og færni leikmanna.  Ekki ólíklegt að töluvert af leikmönnum þessa móts munu skipa stórann sess í leik félaganna á komandi árum.  Þannig að framtíðinn er nokkuð björt í íslensk íshokkíi.  Ef einhverjir eiga góðar myndir af þessu móti þá færu þær vel þegnar hér á síðuna.  Vinnsamlegast sendið tölvupóst á netfangið helgipall@skautafelag.is með upplýsingum.

SR-ingar vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem gerðu þetta mögulegt, foreldrar og aðstendendur leikmanna, svo og mótstjórn.

Einnig þessa sömu helgi áttust við SR og SA í 2.flokki og var það sannkallaður baráttuleikur fram til síðustu mínútu.  Að vanda fór Egill Þormóðsson mikinn í leik SR-ingar, með 3 mörk, og Andri Mikaelsson fyrir SA, einnig með 3 mörk.

Núna komandi helgi ferð Meistaraflokkur SR til Akureyrar og keppir þar 2 leikir, föstudagskvöld og laugardagskvöld.  Þannig að það er um að gera að skella sér á leikinn ef menn eru staddir norðan heiða.

Myndina tók Ómar Edvardsson